Vetrarfærð. Ljósm. úr safni Skessuhorns

Versta veðrið á norðvesturhluta landsins

Í ábendingu sem var að berast frá Vegagerðinni segir að frá Vestfjarðakjálkanum, suður í Dali og á Snæfellsnes, er spáð norðaustanátt, allt að ofsaveðri, frá því um hádegi í dag og þar til seint í kvöld. Mikil snjókoma og hríðarveður verða á fjallvegum. Norðanlands er síðan reiknað með ofankomu og skafrenningi allt niður undir byggð, norðaustanlands fram til fyrramáls.