Við Hvalfjörð. Ljósm. mm

Heitavatnslaust á morgun í Hvalfjarðarsveit

Heitavatnslaust verður á öllu þjónustusvæði Hitaveitufélags Hvalfjarðar á morgun, fimmtudaginn 15. október, frá klukkan 12 til 16, vegna viðgerða og viðhaldsvinnu á vegum Rarik og hitaveitufélagsins. Í tilkynningu frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðar kemur fram að þótt stefnt sé að því að hleypa heitu vatni aftur á kerfið klukkan 16 megi búast við að fullur þrýstingur verði ekki kominn á fyrr en um klukkan 18.