Hér er búið að draga skipið út úr Akraneshöfn. Ljósm. Guðmundur St. Valdimarsson

Bandero var dregið til hafnar í Reykjavík

Bandero, skip Paul Watson samtakanna, var undir kvöld í gær dregið frá Akraneshöfn til hafnar í Reykjavík. Það var gert af öryggisaðstæðum í ljósi slæmrar veðurspár. Bandero hefur legið við bryggju á Akranesi frá því í ágúst en áður hafði Landhelgisgæslan kyrrsett skipið í kjölfar ógnandi aðgerða skipverja við að torvelda hvalveiðar. Það voru Faxaflóahafnir sem beittu sér fyrir því að koma Bandero í öruggara skjól og var lóðs sem dró skipið yfir flóann.

Bandero var dregið til hafnar í Reykjavík - Skessuhorn