
Háskólinn á Akureyri opnar fyrir nám í áfengis- og vímuefnaráðgjöf
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að setja á laggirnar nýtt þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf við Hjúkrunarfræðideild skólans. Námið verður 180 ECTS-einingar og verður það fyrsta sinnar tegundar hér á landi, en hingað til hefur Símenntun HA verið með umfangsmikil námskeið á þessu sviði. Með námsleiðinni er brugðist við brýnni þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði og aukinni eftirspurn eftir sérhæfðu fagfólki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.