
Endurnýjað starfsleyfi til slátrunar í Brákarey
Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi hefur fengið endurnýjað starfsleyfi til næstu tveggja ára frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. „Starfsleyfið er mikilvægt því það opnar á áframhaldandi þróun fyrirtækisins. Við höfum í hyggju að vinna með fleiri bændum og fá inn fleiri hluthafa. Óvissa um framtíðina var á síðasta kjörtímabili lamandi fyrir alla þróun starfsemi okkar,“ segir Eiríkur Blöndal formaður stjórnar sláturhússins sem rekur allt árið handverks- og þjónustusláturhús fyrir bændur í Brákarey. Þar vísar hann til hugmynda um aðra nýtingu Brákareyjar, sem ef af verður myndi þýða að starfsemi sláturhússins yrði hætt í eyjunni.