Strætóferðir felldar niður

Strætóleið 82/58 er ekki ekið á milli Hellissands, Stykkishólms og Borgarness í dag. Þá er heldur ekki ekið leið 51 sem fer á milli Reykjavíkur og Selfoss og ekki heldur leið 50 sem ekur á milli Akraness, Borgarness og Reykjavíkur.