Fréttir

true

Röst mun hefja tilraunir með vítíssóda í Hvalfirði

Búið er að gefa Röst sjávarrannsóknasetri leyfi til að hefja á næstu dögum tilraunir með niðurdælingu vítissóda í sjó í Hvalfirði í vísindaskyni. Hvalfjörður varð fyrir valinu fyrir þessar tilraunir vegna vinda og ferskvatnsáhrifa sem falli vel að því sem Röst er að rannsaka. Þá séu botnlög í firðinum heppileg fyrir rannsóknina. Það er utanríkisráðuneytið…Lesa meira

true

VR og fleiri félög segja upp kjarasamningum í dag

Stéttarfélögin VR, LÍV og Fagfélögin hafa ákveðið að segja upp gildandi kjarasamningum vegna forsendurbrests í ljósi þess að tólf mánaða verðbólga var yfir markmiði samninganna. Munu félögin hitta fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í dag og leggja fram uppsögn. „Það stendur til að segja upp samningum í dag. Það hefur ekkert gerst frá því að stjórn fundaði…Lesa meira

true

Ekki sektað vegna nagladekkja

Nú þegar farið er að kólna í veðri og líkur aukast á hálku, meðal annars á fjallvegum, hvetur Lögreglan á Vesturlandi ökumenn til að sýna sérstaka aðgát og kynna sér veður og færð áður en lagt er af stað. „Ökumenn sem, vegna aðstæðna og öryggissjónarmiða, telja nauðsynlegt að aka á nagladekkjum á þessum tíma verða…Lesa meira

true

Suðaustan þræsingur í dag

Í dag er spáð suðaustan- og austan 10-15 metrum á sekúndu, en heldur hvassara verður hér um landið suðvestanvert. Þar sem vindur stendur af fjöllum gæti orðið nokkuð hvasst í hviðum. Víða verður rigning, sumsstaðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Lægir suðvestanlands seinnipartinn og dregur úr vætu. Á morgun verður breytileg…Lesa meira

true

Slökun og endurnæring í Amtsbókasafninu

Boðið verður upp á stund til slökunar og endurnæringar í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi þriðjudaginn 13. október kl. 19:15. Krzysztof Bernadzki stendur fyrir viðburðinum sem ber yfirskriftina BLISSIN og er ætlað að gefa þátttakendum tækifæri til að staldra við í amstri hversdagsins. Á stundinni verður lögð áhersla á að róa taugakerfið, draga úr streitu og stuðla…Lesa meira

true

Stýrivextir óbreyttir – en tekist er á um kjarasamninga

Tilkynnti var í morgun að stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir í 8%. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár en að flest bendi til þess að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári. „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun…Lesa meira

true

Suðaustan hvassviðri á morgun – vindasamt við fjöll

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að það hvessir og fer að rigna úr suðaustri á morgun um landið suðvestanvert. Spáð er snörpum vindhviðum, um 35 m/s, á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og við Eyjafjöll frá kl. 11:00 til 16:00. Rignir talsvert á Austfjörðum á morgun með auknum líkur á grjóthruni eftir hádegi og fram á nótt.Lesa meira

true

Kvenfélagið Gleym mér ei búið að gefa mikið til samfélagsins

Dugnaðarforkarnir í kvenfélaginu Gleym mér ei í Grundarfirði hafa verið iðnar við kolann undanfarin misseri og gefið hverja gjöfina á fætur annarri. Leikskólinn Sólvellir fékk bambahús/gróðurhús og tjald til notkunar fyrir börnin. Heilsugæslan fékk nýtt skoðunarljós og bekk fyrir sjúkraþjálfunaraðstöðu. Tónlistarskólinn fékk ný hljóðfæri, Dvalarheimilið fékk sturtustól, skíðadeildin fékk veglegan styrk eftir Góugleðina og svo…Lesa meira

true

Sara Sesselja og Sóley Rósa valdar á úrtaksæfingar U15

Sara Sesselja Sveinbjörnsdóttir og Sóley Rósa Sigurjónsdóttir frá Akranesi, báðar fæddar árið 2012, hafa verið valdar til úrtaksæfinga U15 landsliðs kvenna í knattspyrnu. Stúlkurnar koma saman með landsliðshópnum dagana 15.–17. október undir stjórn Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur landsliðsþjálfara. Æfingarnar eru liður í undirbúningi liðsins fyrir þróunarmót sem fram fer í byrjun nóvember og því spennandi verkefni…Lesa meira

true

Leitað að handhafa Bláskeljarinnar 2026

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026, verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Leitað er að einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum um allt land sem hafa fundið leiðir til að nýta auðlindir betur og halda verðmætum lengur í umferð. Bláskelin fær nýtt hlutverk í ár. Hingað til hafa verðlaunin…Lesa meira