
Suðaustan þræsingur í dag
Í dag er spáð suðaustan- og austan 10-15 metrum á sekúndu, en heldur hvassara verður hér um landið suðvestanvert. Þar sem vindur stendur af fjöllum gæti orðið nokkuð hvasst í hviðum. Víða verður rigning, sumsstaðar talsverð úrkoma suðaustantil, en væta með köflum á Norðurlandi. Lægir suðvestanlands seinnipartinn og dregur úr vætu.
Á morgun verður breytileg átt 3-8 m/sek og skúrir á víð og dreif, en norðaustan 8-15 norðvestantil og rigning. Hiti 4 til 11 stig, mildast suðaustanlands.