Suðaustan hvassviðri á morgun – vindasamt við fjöll

Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að það hvessir og fer að rigna úr suðaustri á morgun um landið suðvestanvert. Spáð er snörpum vindhviðum, um 35 m/s, á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og við Eyjafjöll frá kl. 11:00 til 16:00. Rignir talsvert á Austfjörðum á morgun með auknum líkur á grjóthruni eftir hádegi og fram á nótt.