Birkir Jón Jónsson bregður á leik við nýja spjallbekkinn og sannar það að fimm fullorðnir geta vel spjallað saman í einu. Texti og myndir: TFK

Kvenfélagið Gleym mér ei búið að gefa mikið til samfélagsins

Dugnaðarforkarnir í kvenfélaginu Gleym mér ei í Grundarfirði hafa verið iðnar við kolann undanfarin misseri og gefið hverja gjöfina á fætur annarri. Leikskólinn Sólvellir fékk bambahús/gróðurhús og tjald til notkunar fyrir börnin. Heilsugæslan fékk nýtt skoðunarljós og bekk fyrir sjúkraþjálfunaraðstöðu. Tónlistarskólinn fékk ný hljóðfæri, Dvalarheimilið fékk sturtustól, skíðadeildin fékk veglegan styrk eftir Góugleðina og svo mætti lengi telja. Þriðjudaginn 6. október var svo nýr spjallbekkur afhentur Grundarfjarðarbæ í tilefni af viku einmanaleikans. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasamband Íslands og eru svona bekkir komnir víða.