
Stýrivextir óbreyttir – en tekist er á um kjarasamninga
Tilkynnti var í morgun að stýrivextir Seðlabankans haldast óbreyttir í 8%. Í tilkynningu frá stofnuninni kemur fram að verðbólga hafi ekki verið meiri í tvö ár en að flest bendi til þess að hún hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári. „Aukning mældrar verðbólgu hefur fyrst og fremst litast af áhrifum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkun opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins vegar haldist tiltölulega stöðug í liðlega 4% um nokkra hríð,“ segir í tilkynningu. Þá segir að þótt greinilega sé tekið að hægja á efnahagsumsvifum er mæld og undirliggjandi verðbólga enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar, til að forsenda sé til lækkunar stýrivaxta. „Flest bendir þó til þess að verðbólga hjaðni tiltölulega hratt á næsta ári en óvissa er töluverð, ekki síst hvað varðar þróun alþjóðlegra efnahagsmála og framvindu á innlendum vinnumarkaði.“
Hluti verkalýðsfélaga, sem kalla sig Breiðfylkingu launafólks, hafa nú samið við Samtök atvinnulífsins um að þrátt fyrir að verðbólga hafi verið meiri en svigrúm var til í gildandi kjarasamningum, að láta samningana standa. Það þýðir að laun félagsmanna þeirra munu hækka um 5% í byrjun næsta árs, en það er minni hækkun en verðbólga hefur verið síðasta árið. Þau félög sem skrifað hafa undir þetta eru Efling, Starfsgreinasambandið, Samiðn og Byggiðn sem samanlagt hafa um 60% launþega innan sinna vébanda. Meðal forsenda fyrir þessu samkomulagi er að ríki og sveitarfélög takmarki gjaldskrárhækkanir við 2,5% og að Samtök atvinnulífsins hvetji aðildarfyrirtæki sín til að halda aftur af verðhækkunum. Einnig hyggst ríkisstjórnin leggja fram tvö frumvörp um réttindi launafólks, hækkun barnabóta og takmarka hækkanir á húsaleigu.
Fyrrnefnd Breiðfylking verkalýðsfélaga nær ekki til allra verkalýðsfélaga og hefur m.a. Halla Gunnarsdóttir formaður VR sagt að félagið sætti sig ekki við raunlækkun launa með því að samþykkja kjarasamninginn óbreyttan. VR og fleiri félög eru nú í viðræðum við Samtök atvinnulífsins vegna samninganna sem að óbreyttu falla úr gildi á morgun, 8. október.