Leitað að handhafa Bláskeljarinnar 2026

Umhverfis- og orkustofnun óskar eftir tilnefningum til Bláskeljarinnar 2026, verðlauna sem veitt eru fyrir framúrskarandi lausnir á sviði hringrásarhagkerfisins. Leitað er að einstaklingum, fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum um allt land sem hafa fundið leiðir til að nýta auðlindir betur og halda verðmætum lengur í umferð.