VR og fleiri félög segja upp kjarasamningum í dag

Stéttarfélögin VR, LÍV og Fagfélögin hafa ákveðið að segja upp gildandi kjarasamningum vegna forsendurbrests í ljósi þess að tólf mánaða verðbólga var yfir markmiði samninganna. Munu félögin hitta fulltrúa Samtaka atvinnulífsins í dag og leggja fram uppsögn. „Það stendur til að segja upp samningum í dag. Það hefur ekkert gerst frá því að stjórn fundaði í gærkvöldi og þar til núna sem gefur okkur tilefni til annars,“ sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í morgunútvarpinu á RUV í morgun. „Þetta er auðvitað mjög alvarleg staða sem er komin upp og við erum alveg djúpstætt leið yfir því að hafa ekki náð merkingarbærara samtali við Samtök atvinnulífsins til að brúa það mjög svo litla bil sem er á milli okkar.“ Halla sagði ábyrgðina á því að samkomulag hefði ekki náðst liggja hjá Samtökum atvinnulífsins sem hefðu bæði hafnað tillögum VR og ekki komið með neinar móttillögur. „Það er ofboðslega erfitt að vera í svona samningaviðræðum þegar maður er einn í þeim,“ bætti hún við.

Eins og fram hefur komið í fréttum hafa nokkur af fjölmennari verkalýðsfélögum samþykkt að framlengja samninga þrátt fyrir forsendubrestinn að því gefnu að gjaldskrárhækkunum fyrirtækja og hins opinbera verði stillt í hóf. Þeirra á meðal eru Efling, Starfsgreinasambandið, Samiðn og Byggiðn.

Halla Gunnarsdóttir sagði í viðtali í morgun að VR hefði lagt til launaauka, eingreiðslur, réttindakerfi og forsenduákvæði en engu hefði verið tekið. Hún ítrekaði að margir félagsmenn hefðu ekki fengið neitt umfram kjarasamningsbundnar hækkanir og að þær hefðu ekki haldið í við verðbólgu. „Ég veit ekki til hvers maður ætti að vera með stéttarfélög ef þau semja um launalækkanir fyrir sitt fólk ár eftir ár,“ sagði Halla.