
Slökun og endurnæring í Amtsbókasafninu
Boðið verður upp á stund til slökunar og endurnæringar í Amtsbókasafninu í Stykkishólmi þriðjudaginn 13. október kl. 19:15. Krzysztof Bernadzki stendur fyrir viðburðinum sem ber yfirskriftina BLISSIN og er ætlað að gefa þátttakendum tækifæri til að staldra við í amstri hversdagsins.