
Myndin var tekin í fyrravor á landfyllingunni innan við bryggjuna á Miðsandi í Hvalfirði. Þar hafði Röst sjávarrannsóknasetur þá sett upp aðstöðuhús. Fyrirtækið fékk hins vegar ekki leyfi á síðasta ári, en hefur nú fengið það. Ljósm. mm
Röst mun hefja tilraunir með vítíssóda í Hvalfirði
Búið er að gefa Röst sjávarrannsóknasetri leyfi til að hefja á næstu dögum tilraunir með niðurdælingu vítissóda í sjó í Hvalfirði í vísindaskyni. Hvalfjörður varð fyrir valinu fyrir þessar tilraunir vegna vinda og ferskvatnsáhrifa sem falli vel að því sem Röst er að rannsaka. Þá séu botnlög í firðinum heppileg fyrir rannsóknina. Það er utanríkisráðuneytið sem gaf leyfið út 8. september síðastliðinn en kallað var m.a. eftir umsögnum Umhverfis- og orkustofnunar, Hafrannsóknastofnunar og Hvalfjarðarsveitar.