Fréttir

true

Vilja koma heilsueflingu inn á heimilin

„Ein æfing á dag fyrir betri heilsu“ – í nýju hreyfidagatali Sjúkraþjálfararnir Hildur Aðalbjörg Ingadóttir og Svandís Björk Guðmundsdóttir hafa gefið út hreyfidagatal fyrir eldra fólk þar sem einfaldleikinn er hafður að leiðarljósi; ein æfing á dag sem tekur aðeins örfáar mínútur. Markmiðið er að lækka þröskuldinn að reglulegri hreyfingu og ná sérstaklega til þeirra…Lesa meira

true

Ræða framtíð hátíða og menningarhúsa í Dölum

Menningarmálanefnd Dalabyggðar hefur boðað til íbúafundar fimmtudaginn 8. október kl. 18 þar sem ræða á framtíð menningarhátíða og menningarhúsa í sveitarfélaginu. Fundurinn verður opinn öllum íbúum og fer fram í stjórnsýsluhúsinu við Miðbraut 11 í Búðardal. „Við hvetjum alla sem hafa áhuga á menningu og menningarstarfi til að mæta og taka þátt í samtalinu,“ segir…Lesa meira

true

Tónlistarhátíðin Heima Skagi hefur aldrei verið stærri

Stefnir að 29 tónleikum í 12 mismunandi húsum á einni kvöldstund Hin árlega tónlistarhátíð Heima – Skagi fer fram laugardaginn 31. október næstkomandi. Um er að ræða hátíð sem fram fer í 12 heimahúsum en sú nýbreytni verður að þessu sinni að lokatónleikar hátíðarinnar með Á móti sól fara fram í iðnaðarhúsnæði Kapp við Krókalón.…Lesa meira

true

Ungt fólk leiðir samtal kynslóða 10. október

Landsmönnum á öllum aldri er boðið að hittast um land allt og ræða spurninguna: „Hvernig samfélag viljum við skapa saman?“ Laugardaginn 10. október, frá kl. 14 til 17, verður efnt til Samtals um allt land. Ungt fólk leiðir samtölin en öllum kynslóðum er boðið að taka þátt, hlusta á ólík sjónarmið og ræða hvað hvert…Lesa meira

true

Fjölskyldusirkus í Dalabúð í dag

Fjölskyldusirkusdagur verður haldinn í Dalabúð í Búðardal í dag, föstudaginn 2. október frá kl. 15:00–18:30. Þar mun Carla Maeso leiða fjölskylduvæna vinnustofu þar sem þátttakendur fá að kynnast þremur ólíkum greinum sirkuslistarinnar og spreyta sig sjálfir. Carla hefur numið sirkuslistir við tvo evrópska sirkusskóla og miðlar þar af reynslu sinni. Vinnustofan er ætluð fólki á…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá í Íþróttaviku í Dalabyggð

Dalabyggð var með þétta dagskrá í Íþróttavika Evrópu, en hún fer að jafnaði fram ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að…Lesa meira

true

Formleg setning Barnamenningarhátíðar Vesturlands

Barnamenningarhátíð Vesturlands var formlega sett í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík í gærkvöldi. Þar var hátíðinni hleypt af stað með fjörlegri dagskrá og gleði þar sem börn voru í aðalhlutverki. Barnó – Mest – Best barnamenningarhátíð Vesturlands mun í október fara fram víðs vegar um landshlutann og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en…Lesa meira

true

Skallagrímur hóf tímabilið með naumu tapi

Körfuboltatímabilið er farið af stað og þrjú lið af Vesturlandi leika í 1. deild karla í vetur; ÍA, Skallagrímur og Snæfell. Skallagrímsmenn riðu á vaðið í gærkvöldi þegar þeir sóttu KV heim á Meistaravelli í Reykjavík. Borgnesingar byrjuðu af miklum krafti en urðu að sætta sig við naumt 84:82 tap eftir spennandi lokamínútur. Skallagrímur hafði…Lesa meira

true

Bæjarfulltrúar á Akranesi lofa hófstilltum hækkunum

Bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar lýsa í tilkynninu vilja til að kaupstaðurinn taka þátt í sameiginlegu átaki sveitarfélaga og ríkis gegn verðbólgu. Stefnt er að því að almennar hækkanir á gjaldskrám bæjarins á næsta ári verði ekki meiri en 2,5% að því gefnu að ríkið og önnur sveitarfélög taki einnig þátt. „Næsti fundur bæjarráðs fer fram 12. október…Lesa meira

true

Talsverð aukning í útflutningsverðmæti sjávarafurða

Á fyrstu átta mánuðum þessa árs nam útflutningsverðmæti sjávarafurða, að fiskmeti meðtöldu, um 253 milljörðum króna. Það jafngildir ríflega 39% af verðmæti alls vöruútflutnings á tímabilinu. Þetta kemur fram í Radarnum, vefriti SFS. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um rúmlega 7% í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til gengisbreytinga er aukningin aðeins…Lesa meira