
Hækkun þorskverðs hefur vegið upp minna magn og gott betur. Hér er Kristmundur Sumarliðason skipveri á dragnótarbátnum Sveinbirni Jakobssyni SH í lest bátsins. Ljósm. úr safni/af
Talsverð aukning í útflutningsverðmæti sjávarafurða
Á fyrstu átta mánuðum þessa árs nam útflutningsverðmæti sjávarafurða, að fiskmeti meðtöldu, um 253 milljörðum króna. Það jafngildir ríflega 39% af verðmæti alls vöruútflutnings á tímabilinu. Þetta kemur fram í Radarnum, vefriti SFS. Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um rúmlega 7% í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til gengisbreytinga er aukningin aðeins meiri, eða rúm 8%, enda hefur gengi krónunnar að jafnaði verið rétt um 1% sterkara í ár en á sama tímabili í fyrra.