Fréttir

true

Gestir skemmtiferðaskips settu svip á bæjarlífið á Akranesi

Skemmtiferðaskipið Sea Spirit lagðist að bryggju í Akraneshöfn föstudaginn 25. september og var koma þess sú fjórða af þessu tagi til bæjarins í sumar. Um hundrað farþegar voru um borð og að þessu sinni. Héldu gestirnir ekki í skipulagðar rútuferðir frá Akranesi heldur stöldruðu við í bænum, skoðuðu sig um og nýttu verslun og þjónustu.…Lesa meira

true

Yfir tvö þúsund korthafar hjá World Class á Akranesi

Starfsemi World Class á Akranesi hefur vaxið jafnt og þétt frá því stöðin var opnuð og nú eru rúmlega tvö þúsund korthafar skráðir hjá henni. Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri World Class á Akranesi, segir viðtökurnar hafa verið afar góðar og að aðsóknin fari enn vaxandi. „Það er virkilega gaman að sjá hversu vel Akurnesingar og…Lesa meira

true

Stefna á opnun nýrrar N1 stöðvar á Akranesi í vor

N1 hefur byrjað afgreiðslu eldsneytis á nýrri þjónustustöð við Elínarveg á Akranesi, skammt frá Hausthúsatorgi og var það fyrsti áfangi í uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrirtækisins þar sem þjónustuframboð verður töluvert meira en eldsneytisafgreiðsla ein og sér. Meðal þess sem margir hafa beðið eftir er sjálfvirk bílaþvottastöð en nú er unnið við uppsteypu hennar. Á nýju…Lesa meira

true

„Afríka er fátæk en hún er ekki vansæl“

Úr kennslu á Akranesi í kaffiviðskipti í Tansaníu Engilbert Guðmundsson var 37 ára gamall aðstoðarskólastjóri Fjölbrautaskóla Vesturlands og bæjarfulltrúi þegar hann flutti með fjölskyldu sinni frá Akranesi til Tansaníu í Austur-Afríku árið 1985. Árin í Tansaníu urðu fimm og næstu áratugi snerist lífið að mestu um þróunaraðstoð. Engilbert hefur komið víða við og hefur frá…Lesa meira

true

Styrmir tryggði Íslandi sigur og sæti í A-deild

Skagamennirnir Aron Kristinn og Styrmir Gíslason voru í leikmannahópi U17 ára landsliðs Íslands sem gerði sér lítið fyrir og vann alla þrjá leiki sína í fyrri umferð undankeppni EM 2027 í Bosníu. Ísland vann riðilinn og leikur því í A-deild þegar seinni umferð undankeppninnar fer fram. Íslenska liðið lauk keppni með sterkum 3:2 sigri á…Lesa meira

true

Úlfur Arnar valinn þjálfari ársins í annarri deild

Úlfur Arnar, þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi, hefur verið valinn þjálfari ársins í 2. deild karla hjá Harkinu, eftir frábært tímabil Káramanna. Liðinu hafði verið spáð 11. sæti fyrir mót, eftir brösótt undirbúningstímabil og fallbaráttu árið áður, en raunin varð allt önnur. Úlfur tók við stjórn liðsins fyrir tímabilið og fékk Albert Hafsteinsson sér til…Lesa meira

true

Alvarlega slösuð og flutt til læknismeðferðar í Noregi

Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir slysi á mánudaginn í tengivirki Landsnets á Vatnshömrum í Borgarfirði er kona á þrítugsaldri sem nýlega útskrifaðist með sveinspróf í rafvirkjun. Hún fékk í sig straum í tengivirkinu og var fyrst flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Hún hefur nú verið flutt til Bergen í Noregi undir læknis hendur. Lögreglurannsókn…Lesa meira

true

Mun stýra Stofnun atvinnuveganna

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur skipað Magnús Kristjánsson í embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna. Hin nýja stofnun verður til við sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Einnig flytjast verkefni á sviði matvælaeftirlits heilbrigðisnefnda sveitarfélaga til stofnunarinnar. Forstjóri er skipaður til fimm ára og mun leiða undirbúning, móta skipulag og stýra starfsemi stofnunarinnar sem mun taka til…Lesa meira

true

Vesturland kynnt á Vestnorden í Grænlandi

Ferðakaupstefnan Vestnorden fór fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–24. september. Kaupstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og skapar gott tækifæri til að hitta ferðaskrifstofur og samstarfsaðila frá fjölmörgum mörkuðum. Kristján Guðmundsson sótti kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Vesturlands og átti þar fjölmarga fundi með erlendum ferðaskrifstofum og ferðaheildsölum. Einnig…Lesa meira

true

Ísland ver meira til menntamála en OECD-ríkin að meðaltali

Ísland ver töluvert meira opinberu fé til menntamála en OECD-ríkin að meðaltali og þátttaka barna í leikskólastarfi er mikil. Á móti er hlutfall ungs fólks sem ekki hefur lokið námi umfram grunnskóla talsvert hærra hér á landi en að meðaltali innan OECD. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri skýrslu OECD, Education at a Glance 2026,…Lesa meira