
Stefna á opnun nýrrar N1 stöðvar á Akranesi í vor
N1 hefur byrjað afgreiðslu eldsneytis á nýrri þjónustustöð við Elínarveg á Akranesi, skammt frá Hausthúsatorgi og var það fyrsti áfangi í uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrirtækisins þar sem þjónustuframboð verður töluvert meira en eldsneytisafgreiðsla ein og sér. Meðal þess sem margir hafa beðið eftir er sjálfvirk bílaþvottastöð en nú er unnið við uppsteypu hennar. Á nýju stöðinni er þegar hægt að dæla 95 oktan bensíni, dísilolíu, bæði litaðri og ólitaðri, auk AdBlue og rúðuvökva. Sérstaklega hefur verið hugað að aðgengi stærri ökutækja, svo sem vörubíla og vinnuvéla, og er þannig lögð áhersla á að stöðin þjóni jafnt almenningi sem og atvinnulífinu á Akranesi og nærsveitum. Öflugar hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla bætast síðan við á nýju ári.