Sea Spirit við bryggju á föstudaginn. Ljósm. mm

Gestir skemmtiferðaskips settu svip á bæjarlífið á Akranesi

Skemmtiferðaskipið Sea Spirit lagðist að bryggju í Akraneshöfn föstudaginn 25. september og var koma þess sú fjórða af þessu tagi til bæjarins í sumar. Um hundrað farþegar voru um borð og að þessu sinni. Héldu gestirnir ekki í skipulagðar rútuferðir frá Akranesi heldur stöldruðu við í bænum, skoðuðu sig um og nýttu verslun og þjónustu. Slík viðdvöl hefur sérstakt gildi fyrir bæjarfélagið, enda skilar skipakoma af þessu tagi sér með beinum hætti inn í nærumhverfið þegar farþegar verja tíma sínum og fjármunum á staðnum. Breiðin og Akranesviti vöktu ekki síst athygli gestanna. Að sögn Hilmars Sigvaldasonar vitavarðar lagði um helmingur farþeganna leið sína þangað og dvaldi nokkra stund á svæðinu. Þar gafst gestunum færi á að kynnast einu helsta kennileiti bæjarins og njóta útsýnisins af Breiðinni.