Alvarlega slösuð og flutt til læknismeðferðar í Noregi

Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir slysi á mánudaginn í tengivirki Landsnets á Vatnshömrum í Borgarfirði er kona á þrítugsaldri sem nýlega útskrifaðist með sveinspróf í rafvirkjun. Hún fékk í sig straum í tengivirkinu og var fyrst flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Hún hefur nú verið flutt til Bergen í Noregi undir læknis hendur. Lögreglurannsókn er hafin á tildrögum slyssins. Það var fréttamiðillinn DV.is sem greindi frá. „Við rannsökum tildrög slyssins og ástæður og hvort eitthvað hafi klikkað. Það er það sem okkar rannsókn beinist að,“ sagði Jónas H Ottósson hjá Lögreglunni á Vesturlandi í samtali við DV.

Valgeir Örn Ragnarsson, forstöðumaður samskipta hjá Landsneti, segir að fyrirtækið tjái sig ekkert um málið að svo stöddu. Fyrirtækið frestaði haustfundi sínum vegna slyssins. „Hjá Landsneti starfar samheldinn hópur fólks sem lætur sig hvert annað varða. Hugur starfsfólks er nú hjá samstarfsfélaga okkar sem slasaðist í gær. Í því ljósi hefur sú ákvörðun verið tekin að fresta haustfundinum og boða til hans að nýju síðar,“ sagði í tilkynningu fyrirtækisins í gær.