Kristján Guðmundsson var fulltrúi Markaðsstofu Vesturlands á ferðakaupstefnunni. Ljósm. aðsend

Vesturland kynnt á Vestnorden í Grænlandi

Ferðakaupstefnan Vestnorden fór fram í Nuuk á Grænlandi dagana 22.–24. september. Kaupstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir ferðaþjónustuna á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum og skapar gott tækifæri til að hitta ferðaskrifstofur og samstarfsaðila frá fjölmörgum mörkuðum. Kristján Guðmundsson sótti kaupstefnuna fyrir hönd Markaðsstofu Vesturlands og átti þar fjölmarga fundi með erlendum ferðaskrifstofum og ferðaheildsölum. Einnig tóku nokkur ferðaþjónustufyrirtæki af Vesturlandi þátt í kaupstefnunni og kynntu þar sína starfsemi og þjónustu.