
Úlfur Arnar valinn þjálfari ársins í annarri deild
Úlfur Arnar, þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi, hefur verið valinn þjálfari ársins í 2. deild karla hjá Harkinu, eftir frábært tímabil Káramanna. Liðinu hafði verið spáð 11. sæti fyrir mót, eftir brösótt undirbúningstímabil og fallbaráttu árið áður, en raunin varð allt önnur. Úlfur tók við stjórn liðsins fyrir tímabilið og fékk Albert Hafsteinsson sér til halds og trausts í þjálfarateymið. Saman tókst þeim að styrkja liðið verulega og undir þeirra stjórn átti Kári sitt besta tímabil í sögu félagsins.