
Kennslustund. Ljósm. Stjórnarráðið
Ísland ver meira til menntamála en OECD-ríkin að meðaltali
Ísland ver töluvert meira opinberu fé til menntamála en OECD-ríkin að meðaltali og þátttaka barna í leikskólastarfi er mikil. Á móti er hlutfall ungs fólks sem ekki hefur lokið námi umfram grunnskóla talsvert hærra hér á landi en að meðaltali innan OECD. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri skýrslu OECD, Education at a Glance 2026, sem birt var í gær. Skýrslan kemur út árlega og ber saman menntakerfi aðildarríkjanna. Að þessu sinni er sérstaklega horft til þróunar síðasta áratugar og kennaraskorts, sem hefur áhrif á flest menntakerfi OECD-ríkjanna.