
World Class stöðin að Jaðarsbökkum á Akranesi. Ljósm. úr safni/vaks
Yfir tvö þúsund korthafar hjá World Class á Akranesi
Starfsemi World Class á Akranesi hefur vaxið jafnt og þétt frá því stöðin var opnuð og nú eru rúmlega tvö þúsund korthafar skráðir hjá henni. Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri World Class á Akranesi, segir viðtökurnar hafa verið afar góðar og að aðsóknin fari enn vaxandi. „Það er virkilega gaman að sjá hversu vel Akurnesingar og nærsveitafólk hafa tekið í stöðina og þá þjónustu sem við erum að bjóða upp á,“ segir Gerald.