Fréttir

true

Borgarbyggð vill stuðla að efnahagslegum stöðugleika

Á fundi í byggðarráði Borgarbyggðar í morgun var samþykkt samhljóða bókun um takmörkun á hækkun gjalda á næsta ári. „Með vísan til nýsamþykktrar ályktunar landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl, lýsir byggðarráð yfir vilja sínum til að taka virkan þátt í að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, lækkun verðbólgu og vaxta. Í samræmi við ályktunina…Lesa meira

true

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi í dag

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku, um afhendingu á 50 megavöttum af raforku fyrir starfsemi álvers Norðuráls á Grundartanga, tekur gildi í dag 1. október. Samningurinn var undirritaður síðastliðið haust og gildir út september 2031. „Nýr samningur markar mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækjanna en Norðurál hefur keypt raforku frá HS Orku allt frá því að…Lesa meira

true

Gáfu rafstillanlegan göngustiga til HVE á Akranesi

Nýlega afhentu Kaupmannasamtök Íslands rafstillanlegan göngustiga af gerðinni DST8000 Triple til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Sambærileg gjöf var færð sjúkrahúsunum á Egilsstöðum og Neskaupstað, en áður höfðu slíkir göngustigar verið gefnir á sjúkrahúsið á Akureyri og á Grensásdeild LSH. Þessi rafstillanlegi göngustigi þjónar þremur hlutverkum við endurhæfingu sjúklinga; æfingum í stiga, brekku og sem þriggja…Lesa meira

true

Gestir skemmtiferðaskips settu svip á bæjarlífið á Akranesi

Skemmtiferðaskipið Sea Spirit lagðist að bryggju í Akraneshöfn föstudaginn 25. september og var koma þess sú fjórða af þessu tagi til bæjarins í sumar. Um hundrað farþegar voru um borð og að þessu sinni. Héldu gestirnir ekki í skipulagðar rútuferðir frá Akranesi heldur stöldruðu við í bænum, skoðuðu sig um og nýttu verslun og þjónustu.…Lesa meira

true

Yfir tvö þúsund korthafar hjá World Class á Akranesi

Starfsemi World Class á Akranesi hefur vaxið jafnt og þétt frá því stöðin var opnuð og nú eru rúmlega tvö þúsund korthafar skráðir hjá henni. Gerald Brimir Einarsson, stöðvarstjóri World Class á Akranesi, segir viðtökurnar hafa verið afar góðar og að aðsóknin fari enn vaxandi. „Það er virkilega gaman að sjá hversu vel Akurnesingar og…Lesa meira

true

Stefna á opnun nýrrar N1 stöðvar á Akranesi í vor

N1 hefur byrjað afgreiðslu eldsneytis á nýrri þjónustustöð við Elínarveg á Akranesi, skammt frá Hausthúsatorgi og var það fyrsti áfangi í uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrirtækisins þar sem þjónustuframboð verður töluvert meira en eldsneytisafgreiðsla ein og sér. Meðal þess sem margir hafa beðið eftir er sjálfvirk bílaþvottastöð en nú er unnið við uppsteypu hennar. Á nýju…Lesa meira

true

„Afríka er fátæk en hún er ekki vansæl“

Úr kennslu á Akranesi í kaffiviðskipti í Tansaníu Engilbert Guðmundsson var 37 ára gamall aðstoðarskólastjóri Fjölbrautaskóla Vesturlands og bæjarfulltrúi þegar hann flutti með fjölskyldu sinni frá Akranesi til Tansaníu í Austur-Afríku árið 1985. Árin í Tansaníu urðu fimm og næstu áratugi snerist lífið að mestu um þróunaraðstoð. Engilbert hefur komið víða við og hefur frá…Lesa meira

true

Styrmir tryggði Íslandi sigur og sæti í A-deild

Skagamennirnir Aron Kristinn og Styrmir Gíslason voru í leikmannahópi U17 ára landsliðs Íslands sem gerði sér lítið fyrir og vann alla þrjá leiki sína í fyrri umferð undankeppni EM 2027 í Bosníu. Ísland vann riðilinn og leikur því í A-deild þegar seinni umferð undankeppninnar fer fram. Íslenska liðið lauk keppni með sterkum 3:2 sigri á…Lesa meira

true

Úlfur Arnar valinn þjálfari ársins í annarri deild

Úlfur Arnar, þjálfari Knattspyrnufélagsins Kára á Akranesi, hefur verið valinn þjálfari ársins í 2. deild karla hjá Harkinu, eftir frábært tímabil Káramanna. Liðinu hafði verið spáð 11. sæti fyrir mót, eftir brösótt undirbúningstímabil og fallbaráttu árið áður, en raunin varð allt önnur. Úlfur tók við stjórn liðsins fyrir tímabilið og fékk Albert Hafsteinsson sér til…Lesa meira

true

Alvarlega slösuð og flutt til læknismeðferðar í Noregi

Starfsmaður Landsnets sem varð fyrir slysi á mánudaginn í tengivirki Landsnets á Vatnshömrum í Borgarfirði er kona á þrítugsaldri sem nýlega útskrifaðist með sveinspróf í rafvirkjun. Hún fékk í sig straum í tengivirkinu og var fyrst flutt með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Hún hefur nú verið flutt til Bergen í Noregi undir læknis hendur. Lögreglurannsókn…Lesa meira