Norðurál hefur frá upphafi starfseminnar keypt raforkur frá HS orku og mun gera a.m.k. næstu fimm árin. Ljósm. mm

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku tekur gildi í dag

Nýr raforkusamningur Norðuráls og HS Orku, um afhendingu á 50 megavöttum af raforku fyrir starfsemi álvers Norðuráls á Grundartanga, tekur gildi í dag 1. október. Samningurinn var undirritaður síðastliðið haust og gildir út september 2031. „Nýr samningur markar mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækjanna en Norðurál hefur keypt raforku frá HS Orku allt frá því að álverið hóf starfsemi árið 1998,“ segir í tilkynningu.