
Frá afhendingu á rafstillanlega göngustiganum á HVE Akranesi. Á myndinni eru Sigríður Þórhallsdóttir, Ingunn Viðarsdóttir sjúkraþjálfari, Kristján Árnason, Ólafur Björnsson, Ásgeir Ásgeirsson, Júlíus Þór Jónsson, Matthías Sigurðsson og Elísa Svala Elvarsdóttir íþróttafræðingur. Sigríður og Kristján eru f.h. seljanda göngustiganna. Ólafur, Ásgeir, Júlíus Þór og Matthías eru frá Kaupmannasamtökum Íslands. Ljósm. aðsend
Gáfu rafstillanlegan göngustiga til HVE á Akranesi
Nýlega afhentu Kaupmannasamtök Íslands rafstillanlegan göngustiga af gerðinni DST8000 Triple til Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi. Sambærileg gjöf var færð sjúkrahúsunum á Egilsstöðum og Neskaupstað, en áður höfðu slíkir göngustigar verið gefnir á sjúkrahúsið á Akureyri og á Grensásdeild LSH.