Fréttir

true

Hrepptu annað sæti í Bikarkeppni SSÍ

Um liðna helgi fór fram Bikarkeppni SSÍ í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. ÍA var með ungt stelpnalið í 2. deild keppninnar og stóðu þær sig vel og unnu til silfurverðlauna. „Stelpurnar okkar stóðu sig með mikilli prýði og bættu sig verulega í mörgum greinum. Þær sigruðu meðal annars í 4×50 m og 4×100 m skriðsundsboðssundi og…Lesa meira

true

SGS styður ekki hækkanir ríkisins á gjaldskrám

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um fjárlög næsta árs. Þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda og kveðst ekki geta stutt það óbreytt. Í umsögn sinni bendir SGS á að launafólk hafi lagt sitt af mörkum til stöðugleika með hóflegum langtímakjarasamningum. Forsenda þeirra hafi verið að allir tækju þátt…Lesa meira

true

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga var kjörin á Landsþingi sambandsins sem fram fór á Akureyri í síðustu viku. Formaður er Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ. Í stjórn eiga sæti ellefu manns sem allir hafa fengið kosningu í sveitarstjórn síns sveitarfélags. Við kjör í stjórn er landinu skipt upp í fimm kjörsvæði sem taka mið af…Lesa meira

true

Eldri borgarar á ferð um Kjós og Hvalfjörð

Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum fer ár hvert í tvær dagsferðir. Miðvikudaginn 23. september sl. var farin fróðleiks- og skemmtiferð í Kjósina og um Hvalfjörð. Klukkan 8.50 renndi rúta frá Garðar Jónssyni inn á bílastæðið við Grillhúsið, en við stýri sat Guðbjartur Björgvinsson. Klukka 9 voru allir skráðir mættir og formaður ferðanefndar FaB Guðmundur Sigurðsson gaf…Lesa meira

true

Vinnuslys í tengivirki

Vinnuslys varð í tengivirki Landsnets í Borgarfirði eftir hádegi í dag. Fréttavefur RUV greinir frá að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út vegna starfsmanns sem slasast hafði við vinnu sína. Viðkomandi var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Við atvikið sló rafmagni út í Borgarfirði og Borgarnesi um tíma, en er komið á að nýju.Lesa meira

true

Heilbrigðisfulltrúar uggandi um stöðu mála

Aðalfundur Félags heilbrigðisfulltrúa, sem haldinn var á Ísafirði 24. september síðastliðinn, sendir frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum af framtíð faglegs heilbrigðiseftirlits í landinu í kjölfar komandi breytinga um næstu áramót. Þá verður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður í núverandi mynd, en starf þeirra falið tveimur ríkisstofnunum. „Mikilvægt er að tryggja að faglegt starf…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Borgarnesi og Borgarfirði

Vegna bilunar í flutningskerfi rafmagns varð rafmagnslaust í Borgarnesi og Borgarfirði um kl. 13:33 í dag. „Við vinnum nú að viðgerð og vonumst til að rafmagn komi aftur á kl. 14:45. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000,“ segir í tilkynningu frá Rarik.Lesa meira

true

Á Haustmót mæta margir í sína fyrstu keppni

Síðastliðinn föstudag fór fram í Jaðarsbakkalaug á Akranesi Haustmót ÍA fyrir yngri iðkendur, 7–12 ára. Alls tóku 36 sundmenn þátt, þar af 30 frá Sundfélagi Akraness og sex frá Skallagrími. Fyrir marga krakkana var þetta þeirra fyrsta sundmót. „Þau stóðu sig afar vel, sýndu mikinn dugnað og náðu góðum bætingum. Veðrið var sem betur fer…Lesa meira

true

Héldu virkniþing

Í tilefni Íþróttaviku Evrópu boðuðu Borgarbyggð og UMSB til virkniþings í Hjálmakletti í gær. Þar gafst íbúum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íþrótta,- tómstunda- og virknistarf sem fram fer í sveitarfélaginu. Markhópurinn var hvort sem er börn, ungmenni eða eldra fólk. Ágætlega var mætt af hálfu þeirra sem kynntu félög á sviði íþrótta, afþreyingar…Lesa meira

true

Brattagatan gerð upp

Nú er unnið við endurnýjun Bröttugötu í Borgarnesi, milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu. Verkið er samstarf Borgarbyggðar, Veitna og Rarik. Lagðar eru nýjar lagnir fyrir hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu auk þess sem raflagnir eru endurnýjaðar en að endingu gengið frá götu og gangstéttum. Við upphaf verksins var áætlað að vinnu ljúki í október. Það er Borgarverk…Lesa meira