
Héldu virkniþing
Í tilefni Íþróttaviku Evrópu boðuðu Borgarbyggð og UMSB til virkniþings í Hjálmakletti í gær. Þar gafst íbúum tækifæri til að kynna sér fjölbreytt íþrótta,- tómstunda- og virknistarf sem fram fer í sveitarfélaginu. Markhópurinn var hvort sem er börn, ungmenni eða eldra fólk. Ágætlega var mætt af hálfu þeirra sem kynntu félög á sviði íþrótta, afþreyingar eða annarrar þjónustu við íbúa. Blaðamaður Skessuhorns leit við og smellti nokkrum myndum.