SGS styður ekki hækkanir ríkisins á gjaldskrám

Starfsgreinasamband Íslands (SGS) hefur skilað umsögn um frumvarp ríkisstjórnarinnar um fjárlög næsta árs. Þar gagnrýnir sambandið harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir stjórnvalda og kveðst ekki geta stutt það óbreytt. Í umsögn sinni bendir SGS á að launafólk hafi lagt sitt af mörkum til stöðugleika með hóflegum langtímakjarasamningum. Forsenda þeirra hafi verið að allir tækju þátt í að halda aftur af verðlagi svo ná mætti niður verðbólgu og vöxtum.