
Hrepptu annað sæti í Bikarkeppni SSÍ
Um liðna helgi fór fram Bikarkeppni SSÍ í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. ÍA var með ungt stelpnalið í 2. deild keppninnar og stóðu þær sig vel og unnu til silfurverðlauna. „Stelpurnar okkar stóðu sig með mikilli prýði og bættu sig verulega í mörgum greinum. Þær sigruðu meðal annars í 4x50 m og 4x100 m skriðsundsboðssundi og voru ekki langt frá fyrsta sætinu í heildarkeppninni. Keppendur ÍA voru Sunna Dís Skarpheiðinsdóttir, Viktoria Emilia Orlita, Sunna Dögg Michaelsdóttir, Ólöf Oddný Jansen, Karen Anna Orlita og Rúna Björk Ingvarsdóttir,“ segir Kjell Wormdal yfirþjálfari.