
Vinnuslys í tengivirki
Vinnuslys varð í tengivirki Landsnets í Borgarfirði eftir hádegi í dag. Fréttavefur RUV greinir frá að þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út vegna starfsmanns sem slasast hafði við vinnu sína. Viðkomandi var fluttur á Landspítalann til aðhlynningar. Við atvikið sló rafmagni út í Borgarfirði og Borgarnesi um tíma, en er komið á að nýju.