
Eldri borgarar á ferð um Kjós og Hvalfjörð
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum fer ár hvert í tvær dagsferðir. Miðvikudaginn 23. september sl. var farin fróðleiks- og skemmtiferð í Kjósina og um Hvalfjörð. Klukkan 8.50 renndi rúta frá Garðar Jónssyni inn á bílastæðið við Grillhúsið, en við stýri sat Guðbjartur Björgvinsson. Klukka 9 voru allir skráðir mættir og formaður ferðanefndar FaB Guðmundur Sigurðsson gaf bílstjóra merki, af stað úr Borgarnesi. Á Laxárbakka biðu okkar félagar FaB sem búa í Reykjavík og á Akranesi að ógleymdum fararstjóra okkar, Guðmundi Davíðssyni frá Miðdal í Kjós.