Landsþingið fór fram í Hofi á Akureyri.

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Ný stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga var kjörin á Landsþingi sambandsins sem fram fór á Akureyri í síðustu viku. Formaður er Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ. Í stjórn eiga sæti ellefu manns sem allir hafa fengið kosningu í sveitarstjórn síns sveitarfélags. Við kjör í stjórn er landinu skipt upp í fimm kjörsvæði sem taka mið af skiptingu landsins í kjördæmi vegna Alþingiskosninga með þeirri undantekningu að Reykjavík er eitt kjörsvæði. Nýir fulltrúar taka sæti fyrir hönd Vesturlands í stjórn. Það eru þau Auður Kjartansdóttir úr Snæfellsbæ (D) og Haukur Þór Hauksson frá Borgarbyggð (M). Stjórnin situr í fjögur ár.