Rafmagnslaust í Borgarnesi og Borgarfirði

Vegna bilunar í flutningskerfi rafmagns varð rafmagnslaust í Borgarnesi og Borgarfirði um kl. 13:33 í dag. „Við vinnum nú að viðgerð og vonumst til að rafmagn komi aftur á kl. 14:45. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000,“ segir í tilkynningu frá Rarik.