Heilbrigðiseftirlit í landinu er nú rekið á níu stöðum og er á forsjá sveitarfélaga.

Heilbrigðisfulltrúar uggandi um stöðu mála

Aðalfundur Félags heilbrigðisfulltrúa, sem haldinn var á Ísafirði 24. september síðastliðinn, sendir frá sér ályktun þar sem lýst er áhyggjum af framtíð faglegs heilbrigðiseftirlits í landinu í kjölfar komandi breytinga um næstu áramót. Þá verður heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður í núverandi mynd, en starf þeirra falið tveimur ríkisstofnunum.