Fréttir

true

Sveitarfélög sýna viðleitni í að stemma stigum við verðbólgu

Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram á Akureyri í síðustu viku. Þingið samþykkti ályktun Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra í Garðabæ og nýs formanns Sambandsins. Í henni kemur fram að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. „Þingið lýsir yfir vilja sínum til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að…Lesa meira

true

Rafmagnsleysi á Mýrum á morgun

Vegna vinnu við dreifikerfi Rarik verður rafmagnslaust á Mýrum og í Hítardal frá kl. 12:00 til kl. 16:00 á morgun, þriðjudag. „Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Ungmennaþing Vesturlands var haldið um helgina

Ungmennaþing Vesturlands 2026 var haldið á Hótel Borgarnesi um helgina, frá föstudagskvöldi og lauk í gær, sunnudag. Þar kom saman 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins. Þetta er í fjórða skipti sem Ungmennaþing Vesturlands er haldið, en það hefur…Lesa meira

true

Tvenndarkeppni Ingimundar var leikin á föstudaginn

Föstudaginn 25. september var á Hamri í Borgarnesi efnt til liðakeppni í pútti með nýju fyrirkomulagi, sem nefnist tvenndarkeppni. Níu lið mættu til leiks. Í hverju liði er karl og kona og samanlagður árangur þeirra gilti. Keppnin var mjög jöfn og spennandi en leikið var á blautum völlum í rigningarlegu veðri. Í fyrsta sæti urður…Lesa meira

true

Borgarverk jarðvegsskiptir við Stóra Hraun

Í liðinni viku var undirritaður verksamningur við Borgarverk ehf. um jarðvegsframkvæmdir fyrir fangelsið að Stóra-Hrauni við hlið Litla-Hrauns. Verktakinn stefnir á að mæta með vinnuvélar á verkstað strax í þessari viku. Borgarverk átti lægsta tilboðið í verkið eða tæplega 993 milljónir króna, en sjö tilboð bárust. Stóra-Hraun verður öryggisfangelsi með 128 rýmum fyrir afplánun. Það…Lesa meira

true

Sýningin Íslenskur landbúnaður í Laugardalshöll

Íslenskur landbúnaður verður í aðalhlutverki á samnefndri sýningu í Laugardalshöll helgina 9.-11. október næstkomandi. Það er fagsýningarfyrirtækið Ritsýn sem stendur að sýningunni og er þetta þriðja landbúnaðarsýning þess. Sýningarrými seldust upp fyrir nokkrum mánuðum en sýnendur eru hátt í 100 bæði innan- og utan dyra í Laugardalnum. Ólafur M. Jóhannesson, framkvæmdastjóri Ritsýnar, segir að það…Lesa meira

true

Frumvarp um aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðherra hefur kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum. Þar er frumvarpið nú til umsagnar. Í því er lagt til að aðgangur barna að samfélagsmiðlum verði takmarkaður við fimmtánda aldursár. Verði frumvarpið samþykkt verður Ísland eitt af fyrstu löndum Evrópu til að lögfesta aldursmörk af þessu tagi. „Markmið…Lesa meira

true

Sóttu slasaðan hestamann

Björgunarsveitir í Borgarfirði voru laust eftir klukkan 10 í gærmorgun kallaðar til vegna einstaklings sem fallið hafði af hestbaki og slasast í Þrengslagili inn af Sanddal í Norðurárdal. Þá var þyrla Landhelgisgæslunnar einnig kölluð til og flutti hún hinn slasaða á sjúkrahús í Reykjavík.Lesa meira

true

Ræða fyrirhugaðar hafrannsóknir í Hvalfirði á opnum fundum

Röst sjávarrannsóknasetur boðar til tveggja opinna funda í Kjós og Hvalfjarðarsveit í næstu viku þar sem kynntar verða fyrirhugaðar rannsóknir setursins í Hvalfirði. Þar verður meðal annars fjallað um rannsókn á því hvort hægt sé að auka upptöku sjávar á koldíoxíði úr andrúmslofti með því að auka basavirkni sjávar. Fyrri fundurinn verður haldinn mánudaginn 28.…Lesa meira

true

Styrkumsóknir vegna fjárhagsáætlunargerðar

Vinna við gerð fjárhagsáætlunar Snæfellsbæjar og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2027 er hafin. Af því tilefni auglýsir sveitarfélagið eftir umsóknum um styrki vegna verkefna á næsta fjárhagsári. Félög, samtök og aðrir sem hyggjast sækja um styrk frá Snæfellsbæ eru hvött til að skila umsóknum til bæjarritara á bæjarskrifstofunni fyrir 1. nóvember næstkomandi. „Félagasamtök sem fengu…Lesa meira