
Svipmynd frá sýningunni árið 2022. Allir sem vildu fengu að smakka skyr og jógúrt í bás Mjólkursamsölunnar. Ljósm. úr safni Skessuhorns/gbþ
Sýningin Íslenskur landbúnaður í Laugardalshöll
Íslenskur landbúnaður verður í aðalhlutverki á samnefndri sýningu í Laugardalshöll helgina 9.-11. október næstkomandi. Það er fagsýningarfyrirtækið Ritsýn sem stendur að sýningunni og er þetta þriðja landbúnaðarsýning þess. Sýningarrými seldust upp fyrir nokkrum mánuðum en sýnendur eru hátt í 100 bæði innan- og utan dyra í Laugardalnum.