Verksamningur undirritaður. Frá vinstri: Óskar Jósefsson forstjóri FSRE, Páll Winkel ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu og Atli Þór Jóhannsson framkvæmdastjóri Borgarverks. Ljósm. Stjórnarráðið

Borgarverk jarðvegsskiptir við Stóra Hraun

Í liðinni viku var undirritaður verksamningur við Borgarverk ehf. um jarðvegsframkvæmdir fyrir fangelsið að Stóra-Hrauni við hlið Litla-Hrauns. Verktakinn stefnir á að mæta með vinnuvélar á verkstað strax í þessari viku. Borgarverk átti lægsta tilboðið í verkið eða tæplega 993 milljónir króna, en sjö tilboð bárust.