
Landsþing SÍS fór fram í Hofi á Akureyri.
Sveitarfélög sýna viðleitni í að stemma stigum við verðbólgu
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga fór fram á Akureyri í síðustu viku. Þingið samþykkti ályktun Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra í Garðabæ og nýs formanns Sambandsins. Í henni kemur fram að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna.