
Þrjú efstu pörin á mótinu. Ljósm. Sigurjón Guðmundsson
Tvenndarkeppni Ingimundar var leikin á föstudaginn
Föstudaginn 25. september var á Hamri í Borgarnesi efnt til liðakeppni í pútti með nýju fyrirkomulagi, sem nefnist tvenndarkeppni. Níu lið mættu til leiks. Í hverju liði er karl og kona og samanlagður árangur þeirra gilti. Keppnin var mjög jöfn og spennandi en leikið var á blautum völlum í rigningarlegu veðri.