
Í gær áttu ungmennin samtal við kjörna fulltrúa í sveitarstjórnum og Alþingi þar sem þau ræddu efni ályktana þingsins. Ljósm. mm
Ungmennaþing Vesturlands var haldið um helgina
Ungmennaþing Vesturlands 2026 var haldið á Hótel Borgarnesi um helgina, frá föstudagskvöldi og lauk í gær, sunnudag. Þar kom saman 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins. Þetta er í fjórða skipti sem Ungmennaþing Vesturlands er haldið, en það hefur að jafnaði verið haldið annað hvert ár, en lengri tími leið þó í Covid-19. Dagskrá þingsins að þessu sinni einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og samvinnu þátttakenda. Afrakstur þingsins voru sjö ályktanir Ungmennaþings Vesturlands þar sem fram koma áherslur og tillögur ungmenna um málefni sem þau telja mikilvægt að fái aukið vægi í samfélaginu.