Frumvarp um aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum

Mennta- og barnamálaráðherra hefur kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um aldurstakmark barna á samfélagsmiðlum. Þar er frumvarpið nú til umsagnar. Í því er lagt til að aðgangur barna að samfélagsmiðlum verði takmarkaður við fimmtánda aldursár. Verði frumvarpið samþykkt verður Ísland eitt af fyrstu löndum Evrópu til að lögfesta aldursmörk af þessu tagi.