Fréttir

true

Ferðafélag Snæfellsness orðin deild í FÍ

Stjórn Ferðafélags Íslands hefur samþykkti einróma umsókn Ferðafélags Snæfellsness um að verða á ný deild í FÍ. Guðmundur Rúnar Svansson í Dalsmynni, formaður félagsins, segir að forseti FÍ hafi hringt í sig rétt í þann mund sem gönguferð félagsins á Búrfell var að hefjast, en fararstjóri í henni var Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. „Þetta…Lesa meira

true

Bjóða lóð undir nýjan Tækniskóla á Akranesi

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Hafnarfjarbær misst af lestinni með að verða framtíðar staðsetning fyrir nýjan 3000 fermetra Tækniskóla. Nú er því hafin leit að nýrri staðsetningu og hafa nú þegar nokkrir staðir verið nefndir. Akraneskaupstaður hefur brugðist við og boðið byggingarnefnd nýs Tækniskóla að skoða aðstæður á Akranesi, enda hentug staðsetning…Lesa meira

true

Baldur fer í slipp í október

Breiðafjarðarferjan Baldur fer í slipp í Hafnarfirði sunnudaginn 6. október næstkomandi og er áætlað að viðhald taki fjórar til sex vikur. Síðasta áætlunarferð Baldurs yfir Breiðafjörð áður en skipið fer í slipp verður því mánudaginn 5. október. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Á meðan Baldur er í slipp verður farþegabáturinn Ingólfur frá Ísafirði…Lesa meira

true

Tillögur gerðar um breytingar á skiptingu þingsæta

Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði fyrr á þessu ári, og skoða átti aukið jafnræði í kosningum og þingsætadreifingu, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til þrjár breytingar á kosningalögum sem miða að því að jafna atkvæðisrétt. Það mun þýða fækkun þingmanna í dreifbýliskjördæmum. Í fyrsta lagi er lagt til að kjördæmissætum verði fækkað niður í sex…Lesa meira

true

Ráðherra boðar heildar endurskoðun byggðakvótans

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla, samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Reglugerðin gildir fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 og hefur tekið gildi. Í henni er tilgreint hvernig ráðstafa skuli þeim afla sem dreginn er frá heildarafla og rennur til byggðakerfis sjávarútvegsins, nánar tiltekið til almenns byggðakvóta, byggðakvóta Byggðastofnunar, línuívilnunar,…Lesa meira

true

Eldri húsbíll brann

Snemma í morgun fékk Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar útkall vegna elds í húsbíl. Bíllinn stóð þétt upp við vegg Skagavershússins á Akranesi. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra var grunur um að haldið hafi verið til í bílnum í sumar og nálguðust slökkviliðsmenn verkefnið með tilliti til þess. Bíllinn reyndist hins vegar mannlaus. Var hann…Lesa meira

true

Um 10.500 börn undir lágtekjumörkum

Um 10.500 börn á Íslandi bjuggu á heimilum undir lágtekjumörkum árið 2024, eða 12,6% barna í landinu. Hlutfallið hefur þó lækkað töluvert frá aldamótum þegar það var 16,5%. Börnum sem búa við varanlega fátækt hefur einnig fækkað lítillega og var hlutfall þeirra 5,1% árið 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um fátækt barna og…Lesa meira

true

Nýr golfskáli að rísa hjá Jökli

Mikill hugur er í félögum í Golfklúbbnum Jökli í Snæfellsbæ sem í sumar tóku í notkun nýjan níu holu golfvöll við flugvöllinn í Rifi. Nú er verið að reisa nýjan golfskála sem er 125 fermetrar að stærð. Hjörtur Ragnarsson, ritari golfklúbbsins, segir í samtali við Skessuhorn að húsið sé keypt frá Landshúsum ehf. og er…Lesa meira

true

Jörð skalf undir vestanverðum Langjökli

Klukkan 14:18 í dag varð skjálfti 4,2 að stærð í vestanverðum Langjökli og hafa nokkrir minni eftirskjálftar fylgt, sá stærsti 2,3 að stærð. Jarðskjálftavirkni í og við Langjökul er algeng en síðast varð skjálfti af þessari stærð í júní 2022 og mældist sá 4,6 að stærð. Veðurstofu hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist…Lesa meira