
Tillögur gerðar um breytingar á skiptingu þingsæta
Starfshópur sem dómsmálaráðherra skipaði fyrr á þessu ári, og skoða átti aukið jafnræði í kosningum og þingsætadreifingu, hefur skilað tillögum sínum. Lagðar eru til þrjár breytingar á kosningalögum sem miða að því að jafna atkvæðisrétt. Það mun þýða fækkun þingmanna í dreifbýliskjördæmum. Í fyrsta lagi er lagt til að kjördæmissætum verði fækkað niður í sex sæti í hverju kjördæmanna sex og að hin 27 þingsætin verði jöfnunarsæti. Í öðru lagi er lagt til að þingsætum verði í heild ráðstafað hlutfallslega jafnt til kjördæmanna miðað við tölu kjósenda á kjörskrá og í þriðja lagi að ákvæðum um útdeilingu jöfnunarsæta til einstakra kjördæmislista verði breytt í þeim tilgangi að gera úthlutun stöðugri og líkari hreinni kjördæmisúthlutun sæta. Að líkindum mun þingmönnum í Norðvesturkjördæma fækka um einn verði tillögurnar samþykktar. Verða sex kjördæmakjörnir þingmenn en jöfnunarþingsætið fer annað.