Ráðherra boðar heildar endurskoðun byggðakvótans

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla, samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða. Reglugerðin gildir fyrir fiskveiðiárið 2026/2027 og hefur tekið gildi. Í henni er tilgreint hvernig ráðstafa skuli þeim afla sem dreginn er frá heildarafla og rennur til byggðakerfis sjávarútvegsins, nánar tiltekið til almenns byggðakvóta, byggðakvóta Byggðastofnunar, línuívilnunar, skel- og rækjubóta og frístundaveiða. Leyfilegur heildarafli dregst saman í helstu botnfisktegundum milli fiskveiðiára, einkum í ýsu og ufsa. Það aflamagn sem dregið er frá heildarafla og stendur byggðakerfinu til ráðstöfunar lækkar af þeim sökum um 1.210 tonn milli ára eða um 5,8%.