Guðmundur Rúnar Svansson formaður Ferðafélags Snæfellsness og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Ísland. Myndin er tekin við afhendingu umsóknar FFSN mánudaginn 7. september sl.

Ferðafélag Snæfellsness orðin deild í FÍ

Stjórn Ferðafélags Íslands hefur samþykkti einróma umsókn Ferðafélags Snæfellsness um að verða á ný deild í FÍ. Guðmundur Rúnar Svansson í Dalsmynni, formaður félagsins, segir að forseti FÍ hafi hringt í sig rétt í þann mund sem gönguferð félagsins á Búrfell var að hefjast, en fararstjóri í henni var Kristinn Jónasson bæjarstjóri í Snæfellsbæ. „Þetta var skemmtileg tímasetning,“ sagði Guðmundur í samtali við Skessuhorn. Það var í sjálfu sér ákveðið formsatriði en við þurftum að uppfylla skilyrði, t.d. um frágang félagatals og fjölda félagsmanna, og stjórnin þurfti að samþykkja formlega umsókn. Ég gerði mér svo ferð í bæinn til að afhenda umsóknina,“ segir hann.