Nýr golfskáli er nú óðum að taka á sig mynd. Texti og myndir: AF

Nýr golfskáli að rísa hjá Jökli

Mikill hugur er í félögum í Golfklúbbnum Jökli í Snæfellsbæ sem í sumar tóku í notkun nýjan níu holu golfvöll við flugvöllinn í Rifi. Nú er verið að reisa nýjan golfskála sem er 125 fermetrar að stærð. Hjörtur Ragnarsson, ritari golfklúbbsins, segir í samtali við Skessuhorn að húsið sé keypt frá Landshúsum ehf. og er flutt inn tilsniðið frá Litáen. Fjórir menn frá framleiðanda húsanna sjá um að reisa húsið. Hjörtur segir að sú vinna gangi mjög vel og verður húsið formlega tekið í notkun næsta sumar. Jónas Kristófersson er byggingameistari golfskálans og sá hann um að reisa sökkla en TS vélaleiga annast jarðvegsvinnu.