Breiðin á Akranesi gæti verið upplagður staður fyrir nýjan Tækniskóla Íslands. Ljósm. mm

Bjóða lóð undir nýjan Tækniskóla á Akranesi

Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Hafnarfjarbær misst af lestinni með að verða framtíðar staðsetning fyrir nýjan 3000 fermetra Tækniskóla. Nú er því hafin leit að nýrri staðsetningu og hafa nú þegar nokkrir staðir verið nefndir. Akraneskaupstaður hefur brugðist við og boðið byggingarnefnd nýs Tækniskóla að skoða aðstæður á Akranesi, enda hentug staðsetning og leiðin á höfuðborgarsvæðið mun styttast verulega þegar Sundabraut verður tekin í notkun, sem gæti orðið á svipuðum tíma. „Við í bæjarstjórn vorum sammála um að bjóða fram lóð undir þessa starfsemi og fólum Sturlaugi Haraldssyni bæjarstjóra að koma því á framfæri. Nú hinkrum við og vonum að byggingarnefnd Tækniskólans sjái þau tækifæri sem felast í uppbyggingunni hér á Akranesi,“ segir Ragnar B Sæmundsson forseti bæjarstjórnar í samtali við Skessuhorn.